Miss big á niðurleið

ég skal – ég vil – ég get

Komin heim

Höfundur: missbig á mars 26, 2008

jæja ég er s.s komin heim úr þvílíkri sukkferð. Þetta byrjaði ágætlega, tók með mér nesti í lestina, keypti ekkert nammi í fríhöfninni, vigtaði flest allt fyrstu tvo dagana svo fór allt í vitleisu. Ekki það að ég hafi endlega borðað allt of mikið en bara voðalega vitlaust lítið grænmeti og lítið vatn…. kom heim eftir 10 daga og prufaði að stíga á viktina…..arrrrg. 77.5kg sem eru 4 kg…. en ég trúi því bara ekki… getur maður þyngst svona mikið á 10 dögum….. en jæja spurning hvað viktin segir þegar ég er búin að drekka fuuuullllt af vatni og halda mig við ddv.

En annars var fríið algerlega frábært þrátt fyrir þetta át… hihi skrifa ferðasögu seinna! 

Skrifað í Uncategorized | 2 ummæli »

trallllaaala

Höfundur: missbig á mars 13, 2008

Þá er ég tilbúin í páska fríið, var í vigtun í dag og það yfirgáfu mig víst 1,5 kg þessa vikuna bara nokkuð ánægð með það. Vigtin stendur í 73,4 og með ddv er ég búin að flegja af mér 13,5 kg…. bara 1,5 í 15 kg….úllala

Fer til Swiss á laugardaginn og kem ekki heim aftur fyrr en 25. mars, heilir 10 dagar í örmum eiginmannsins, unaðslegt.

Læt nú samt vita af mér en kallinn er búin að lofa að passa upp á matarræðið með mér. Hann er nú sjaldnast vandamálið…. það er nú hún ég sem fæ allskonar langannir í einhverja vitleisu og set svo bara upp hvolpa svipinn og bræði kallin…. því miður.

En ég ÆTLA að standa mig. Ekkert múður, það var nebblega markmiða setningar dagur á fundinum í dag og mitt markmið er að þann 28 apríl ætla ég að verða orðin 68,4 kg…. arrrrg 5 kg 5 vikur. Koma svo ;)  

Skrifað í Uncategorized | 3 ummæli »

Draumurinn

Höfundur: missbig á mars 12, 2008

Var á blogg rúntinum og á einu mogga blogginu rakst ég á þessi orð

-Dreymdu stóra drauma…. en láttu þá rætast með því að fara fetið, taka eitt skref í einu.  Hvert skref færir þig nær draumnum.  Ef þú tekur hinsvegar ekkert skref, þá muntu aldrei komast á áfangastað.

-Aldrei að horfa á allan listann í einu, takstu eitt atriði í einu, kláraðnu það og kíktu svo á næsta aðtriði.

-Skref fyrir skref, það er galdurinn.  

Þetta er reyndar ekkert bara enn eitt moggabloggið, heldur er þetta bloggið hennar Áslaugar sem að lýsir ótrúlegri baráttu fjölskyldu með eitt langveikt barn og tvo litla unga í viðbót. 

En engu að síður ættu allir að getað fundið þessum orðum pláss í efri skápnum (höfðinu).

Baráttu kveðja 

Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »

ekki að standa mig ;) í blogginu

Höfundur: missbig á mars 11, 2008

Bara að skella inn örfáum línum. Brjálað að gera í skólanum og tíminn líður svo hratt, allt í einu er maður barasta ekki búin að blogga í viku (já eða meira).Matarræðið gengur, hrasaði aðeins um helgina en annars búin að vera ofur dugleg. Það fóru ekki nema 300 gr í síðustu viku en ég finn að núna verður það aðeins meira …. hihihVigtun á fimmtudaginn og svo fer ég til Sviss á laugardaginn og verð þar í 10 daga….ummmmm páskafrí. Svo er bara að standast freistingarnar. Það er nebblega þannig að þegar ég fer eitthvað finnst ég að ég megi hitt og þetta…algerlega stór misskilingur að kaloríurnar séu eitthvað öðuruvísi í útlandinu.En ég lofa að það kemur blogg fljótlega aftur.Baráttu kveðja ;)  

Skrifað í Uncategorized | 3 ummæli »

Bjartsýniverðlaun Brösters

Höfundur: missbig á mars 4, 2008

Jæja, búin að vera “edrú” í þrjá daga og lífið lítur bara allt öðuruvísi út í dag en það gerði í síðustu viku. Jákvæðnin hefur rutt sér til rúms og ég hef náð 2 1/2 degi (bara útaf því að dagurinn í dag er bara hálfnaður hihih) 100 % ddv, svo er bara að halda áfram að klífa stiga og vona að maður lendi ekki á slöngu reit (slönguspil).

 Mig langar bara að þakka þeim sem eru búnir að kommenta hjá mér síðustu daga, þvílíkt búst… þúsund þakkir, vona að ég geti launað það einhvern daginn.

Keypti mér um daginn ferskar gellur ohhh hvað þær eru góðar, þær nefninilega þorna ekki eins og þorskflökin vilja gera, annars elda ég fiskinn svo lítið að hann þornar nú afar sjaldan hjá mér en hvað með það….ohhhh ég elska fisk :P Gæti borðað fisk í öll mál ef það væri ekki svona erfitt að nálgast hann hérna (í hinum eina sanna fiski bæ(þorpi) danmerkur) já og ef hann vææri ekki svona rosalega dýr. 

Eigið þið einhverja uppáhalds ddv væna uppskrift af fiski, bara svona þannig að maður fái smá tilbreytingu í lífið.  

Baráttu kveðja 

Skrifað í Uncategorized | 2 ummæli »

Langavitleysan

Höfundur: missbig á febrúar 28, 2008

Ok, þessi síðasta vika er búin að vera ömurleg, vægast sagt, þvílíkur rússíbani. 

Eina mínútuna er ég svo glöð yfir því að vera á danska, svo aðra mínútuna er ég bara svakalega langt niðri og nenni ekki meiru, tilbúin að gefast upp, sé engann tilgang með þessari eilífu megrun.

Ég meina kommon þegar maður er búin að vera í megrun næstum í 6 ár samfleitt þá sér maður bara ekki lengur tilganginn ef árangurinn er ekki fullkominn. 

Sendi Pernille, vigtarráðgjafanum mínum, neyðarkall í tölvupósti um daginn og fékk fínasta pepp til baka. Hún bað mig um að gera eftirfarandi æfingar (4 stk):

1. Skrifaðu 5 ástæður, afhverju þú villt léttast.

2. Brjóttu eitt A4 blað saman, langsum. Öðrumegin skrifar þú kostina við að halda áfram að breita um líffstíl og hinumeginn skrifar þú kostina við að hætta að velta þessu fyrir sér. (þessi fyrri á gjarna að verða mikið lengri)

3. Fylltu bakpoka með bókum, ca 10 kg, og röltu með hann í 10 mín, láttu hann frá þér og finndu svo muninn á því að ganga án hans. (Ef þú getur fundið eitthvað sem vegur jafn mikið og þau kíló sem þú hefur misst prufaðu þá að rölta með það í smá stund). 

4. Skrifaðu 5 ástæður þess hversvegna þú varðst ofþung og 5 ástæður fyrir því að þú villt ekki verða það aftur. (5+5 ástæður)

Hún Pernille er svo indæl og skilur svona bakslög og kann að hjálpa manni af stað aftur. 

Jæja, vona að þetta hafi hjálpað ykkur álíka mikið og mér. Er vonandi að hökta réttu leiðina. Er s.s á leið í vigtun núna kl 17 og ég bara veit að ég hef þyngst frá því í síðustu viku, það eru alltaf þung skref í vigtun þegar maður veit upp á sig sökina!

En það þíðir ekkert að grenja yfir þessu, ég fæ nýja tölu og vinn bara út frá henni og ekkert með það.

Baráttu kveðja héðan frá Baunalandinu góða  

Skrifað í Uncategorized | 3 ummæli »

Myndirnar

Höfundur: missbig á febrúar 25, 2008

Búin að læsa myndaalbúminu mínu, ekkert vera hrædd um að biðja um lykilorðið, ég vill bara vita svona ca. hverjir eru að skoða þær.Ég missti mig örlítið á laugardaginn…. búin að vera á bömmer síðan þá, en er komin upp á hestinn og tölti áfram.Fór út að hlaupa, mikið er það mikil snilld maður fær svo mikla orku og líður svo innilega vel að það er ekkert grín. mæli með þessu. Hér er prógrammið sem ég er að hlaupa (skokka) eftir.

Skrifað í Uncategorized | 2 ummæli »

komin til baka

Höfundur: missbig á febrúar 22, 2008

Hæ, ég missti bara aðeins trúnna á bloggið og mig sjálfa en nú er ég komin til baka og ætla að reyna að blogga svolítið.

Þrátt fyrir að ég hafi ekki bloggað missti ég ekki algerlega stjórn á mér í mataræðinu.

Missti mig aðeins í prófatörninni. Maðurinn minn svo æðislegur að vera hjá mér fyrri hlutann og svo fyllti hann frystirinn af ddv vænum réttum og ískápinn af grænmeti áður en hann fór heim til sín.

En það var fyrst eftir að hann fór sem ég fór aðeins út af sporinu en ekki á þann hátt sem ég hef vanalega gert, ég borðaði ekki annað en brauð og ost, ekki of mikið nei nei bara 2 brauðsneiðar og 2 ostsneiðar í öll mál.

Léttist ekki baun en þyngdist heldur ekki, sem er algerlega eitthvað nýtt fyrir mér.

Sem sagt þá kommst ég í gegnum jól og prófatímabilið án þess að þyngjast, mikið sátt við það bara :D

Það var svo eftir prófin þegar ég fór í heimsókn til eiginmannsins að ég barasta datt í brauð og ís. Svo fórum við helst til oft út að borða… hann átti afmæli…ég náði prófunum með glæsi…ég var í heimssókn þess vegna allt of mörg matarboð……. endalausar afsakannir.

Kom heim til Danaveldis með 2 kg í yfirvigt.. hihih

Núna er ég komin á réttu brautina, 12 kg farin með hjálp frá ddv, er þá orðin 74,6 kg og ég hef ekki verið svona létt í mmmöööörg ár og leiðin er bara niður á við :D

Ég er líka að ná að halda í við hlaupaprógrammið mitt sem er algerlega frábær tilfinning. Hleyp 3 daga í viku og er núna komin í það að geta hlaupið 5 mín í einu og það 3-4 sinnum (þ.e. 5 mín hlaup, 2 mín labb, þrisvar sinnum). Þetta hljómar kannski ekki mikið en þetta er stór sigur fyrir mig.

Ég er s.s búin að setja mér það markmið að í júní (næstkomandi) nái ég mínu markmiði að komast í kjörþyngd. Er ekki búin að setja ákveðna dagsetningu en hún kemur þegar nær dregur.

Ég er búin að uppfæra ”markmiðin”, ”hver er ég” og skellti svo inn nokkrum myndum sem segja sögu mína í stórum dráttum.

Sé að það er enn einhver slatti sem kíkir hérna inn.. það má alveg kommenta :D  

Enn og aftur baráttu kveðjur frá mér ;)  

Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »

blogga bara á sunnudögum?

Höfundur: missbig á desember 9, 2007

já, enn einn sunnudagurinn, geðveikt að gera í próflestri ég er bara ekki að meika þetta allt. Lesa helling, borða rétt, sofa rétt, hreyfa sig… arrrg.. og já það er rigning hér eins og venjulega. Vigtin hefur samt verið ansi stabíl og eins gott að hún rjúki ekki upp úr öllu valdi í jóla- og prófatíð ég skal standa mig… hihieins og ein sagði á fundi um daginn “ég fitna ekki af matnum sem ég borða milli jóla og nýs árs heldur milli nýjárs og jóla” nokkuð gott ik? Það er samt víst að ég næ ekki markmiðinu mínu fyrir áramótin þ.e. 70 kg. þar sem ég er 74-75 kg núna. Komst ekki í vigtun í síðustu viku (alveg satt, engin léleg afsökun þar á ferð) en ég mæti að sjálfsögðu á morgun. Vona bara að vigtin verði skemmtileg við mig… vona að hún fari ekki yfir 75 kg… var nefninilega 76,0 síðast. nú er bara að halda vel á spöðunum… Það er samt svo gott ef maður nær að borða rétt og hreyfa sig þá nefninilega nær maður að læra mikið meira :D Verð samt að segja ykkur frá því sem mig langar SVO mikið í er búin að dreyma þetta í marga daga, stóra könnu með heitusúkkulaði með rommi (eða appelsínu líkjör) og hellllliiiing af þeyttum rjóma …. slllefffEn ég verð nú að hafa stjórn á mér hihihihihGangi ykkur vel (það er sko allt í lagi að kvitta, það er fullt af heimsóknum og enginn kvittar…. )Baráttu kveðja frá mér ;)  

Skrifað í Uncategorized | 1 ummæli »

enn einn sunnudagurinn

Höfundur: missbig á desember 2, 2007

Var ógurlega dugleg þessa vikuna og fylgdist með vigtinn, skráði niður kvöld og morgun vigtina. Það var allt á góðri niðurleið en svo á föstudaginn drakk ég ekki nægilega  mikið af vatni og um kvöldið var ég að passa 2 yndisleg börn, ég fékk mér smá pizzu, coke og ís (en í ótrúlega litlu magni). Þetta fannst vigtinni minni ekkert sniðugt og rauk upp um allt of mikið.

dagur

Morgun

Kvöld

Ddv vigtin

24

75.6

76.1

 

25

75.4

76.0

 

26

75.3

76.1

76.0

27

75.0

75.6

 

28

74.9

75.5

 

29

74.9

75.4

 

30

74.6

76.7

 

1

75.4

75.8

 

2

75.0

 

 

 

 

 

 

vona að þetta verði í lagi og vigtunin á mogrgun komi vel út… er reyndar að fara í ferð með skólanum á morgun, frá 7:30 til 17:30… puhha…

vona að ég nái að komast í vigtunina.

Baráttu kveðja frá Baunalandinu 

Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »