Miss big á niðurleið

ég skal – ég vil – ég get

Markmiðin

Jæja, enn og aftur þarf ég að uppfæra þennann marmiða lista. En núna er það bara að setja sér markmið að klára þetta frá.

Upp með sokkana, nú verður bjartsýnin tekin á þetta ;)

Ég ætla mér að ná 15 kg af mér til viðbótar þá verða þetta orðin 27 kg samtals og ég komin í kjörþyngd 59 kg.

Núna er vika nr. 8 og ég er 74 kg, ég ætla mér að vera komin í kjörþyngd í júní, er ekki með dagsetninguna á hreinu en það eru 15 vikur til 1 viku júní mánaðar. ca eitt kg á viku ætti að skila mér grannri inn í sumarið. 

Verðlaunin

69 kg-> -5 kg => Gallabuxur


64 kg-> -10 kg => Fótsnyrting


Þegar kjörþyngd er náð, 59 kg, þá er bara að verðlauna sig með fötum ;) já og það nýjasta hjá mér er að ég ætla að skrá mig á magadans námskeið þegar ég er komin í mark.

Ætla mér niður í 59 kg sé svo til þegar ég næ þangað. Ég er ca. 161 cm þannig að það er fínt að vera 58-62 kg. og á þessu bili ætla ég að halda mér til frambúðar.. :D

Markmið 2007-2008
Klára dæmið
Komast í form (hlaupa)
Standa mig (sérstaklega í skólanum….já og léttingnum og einkalífinu að sjálfsögðu)

Hvernig ætla ég að fara að þessu?  

 - Með því að blogga um jafnt sigra og ósigra. Vera hreinskilin.

 - Mæta á fundi reglulega og bara að stíga á vigtina þar.

- Hreyfa mig reglulega.

-Verðlauna mig, hvernig? Fyrir hver 5 kg sem fara fæ ég verðlaun, en bara í fyrsta skipti sem þau hverfa þ.e. að ef þau koma aftur á og fara svo aftur… þá engin verðlaun… ekki tvisvar fyrir sömu kílóin það er bara asnalegt. Svo er það twisturinn: ef ég þyngist á milli vigtanna verður hegninga vika þar sem ströng vika verður tekin.

- Fæ stór verðlaun þegar ég fer niður í 75 kg því þá er ég ekki lengur offitusjúklingur (skv.BMI) 

Afhverju er ég að þessu? 

- Af því að ég get það.

- Sýna öðrum að ég get þetta.

- Öðlast betri heilsu. – Sýna líkama mínum virðingu.

- Finna sjálfa mig, öðlast meira sjálfsálit.

- Námið og tilvonandi starf krefst þess að ég sé í góðu formi (er á leiðinni í að koma mér í það líka).

- Til að geta klætt mig uppá án þess að þurfa að fara í “stóru” búðirnar.- Ég er að fara að gifta mig í ágúst og ekki væri verra að vera þá í sínu besta formi. – Ég hitti kallinn minn sennilega ekki nema einu sinni í mánuði næsta hálfa árið eða svo og ekki væri verra að lýta alltaf betur út, í hvert skipti sem við hittumst. 

 

Skildu eftir svar

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>