Hver er ég
Ég er 28 ára sveitastelpa sem á í einhverju barsli við að ná afsér aukakílóum sem hlaðist hafa upp á síðustu 10 árum.
Er búsett í Danmörku eins og er, í námi sem að ég er að fíla í tætlur.
Ég var hraustlegt barn og þegar ég útskrifaðist úr grunnskóla var ég í mjög góðum málum 57 kg og 160 cm á hæð.
Á fyrsta ári í menntaskóla fór að síga á ógæfu hliðina þar sem ég var ein af þeim sem sáu um skólasjoppuna.
Á öðru ári kynntist ég kærastanum mínum og þá var leiðin bara upp á við. Það sem margir þekkja þegar lífsförunauturinn er fundin þá vill vigtin stíga.
Við giftum okkur síðast liðið sumar, búum í sitthvoru landinu og ég hef það markmið að koma honum sífellt á óvart þegar við hittumst s.s með léttingi
Á þessum 10 árum sem við höfum verið saman þá fór ég úr 60kg upp í 105kg og er núna (febrúar 2008) komin niður í 74 kg. Það var 2002 sem hápunktinum var náð og þá var gripið til þess að borða Hebalife. Það virkaði að sjálfsögðu og 10 kg fuku af á 3 mánuðum, þá hélt ég auðvita að ég væri sloppin og kynni að borða “rétt”, en auðvita gekk það ekki ég lærði að svindla á sjálfri mér þannig að ég léttist ekki eins og til var ætlast.
Af og til tók ég mér tak og sumarið 2005 náði ég mér niður í 83 kg og var auðvita í skýjunum og hélt að núna væri ég búin að ná því.
Núna (feb. 2008) er ég 74 kg og þar sem ég er 162 cm (samkvæmt síðustu mælingum) ætti ég að vera 60 kg.
Eftir þessi 5 ári í átaki tel ég mig vera búin að læra inn á mína galla, og ætla mér að breyta lífi mínu til hins betra.
Ég vona að við átaksbloggarar getum stutt við bakið á hvort öðru og tapað okkur.
ÉG GET ÉG VIL ÉG SKAL …. ÉG GET