Miss big á niðurleið

ég skal – ég vil – ég get

Archive for júlí, 2008

puhhha

Posted by missbig á júlí 3, 2008

Mér gengur alveg fáranlega illa að venja mig af sykrinum og sukkinu, búin að þyngjast óþarflega mikið og hreyfingin er í algjöru lágmarki þessa dagana. 

Reyni mitt besta við að grafa mig út úr þessum vítahring, vona bara að það takist fljótlega.

Er búin að vinna núna í 2 daga og er gersamlega að klepra á þessari vinnu, mikið svakalega ber ég mikla virðingu fyrir fólki sem vinnur og menntar sig innan þessa geira. Fólkið sem sér um gamla fólkið þegar það er gersamlega dottið úr öllu samhengi á sko skilið að fá mikið hærri laun en þau fá fyrir þetta svo rosalega óeigingjarna starf.

En já, þegar ég er komin inn í vinnuna þá vona ég að lífið verði aðeins einfaldara en það er í augnablikinu, ég byrja á að taka lítil skref í áttina að heilbrigðu lífi.

1.skref: Drekka 2-3 lítra  af vatni á dag

2.skref: Sykur verður gersamlega tekin af matseðlinum

3.skref: Grænmetis markmið verður sett, hægt og bítandi ætla ég að koma mér upp í að borða 600 gr á dag

4.skref: Minnka brauð og ost neysluna niður í leyfileg mörk

5 skref: Vera duglegri við að elda heima og búa til nesti til að taka með í  vinnuna.

Einnig ætla ég að reyna að toga mig upp úr þunglyndis grifjunni sem ég virðist vera ansi föst í þessa dagana, hér eru það líka hænuskrefin sem virka:

1. Koma reglu á svefnvenjurnar (á fætur kl 6 og í bólið kl 22 (þegar ég á að mæta kl 7 í vinnuna) Reyna að vakna alltaf á sama tíma og í bólið á sama tíma, það gefur meiri stöðuleika.

2. Koma reglu á matarvenjur og vatnsneyslu.

3. Vera jákvæð, það að vakna og segja “þetta verður góður dagur” getur gert kraftaverk

4. Hreyfa mig, við það að hreyfa sig framleiðir kroppurinn endorfín sem gerir mann glaðari.

Góðar stundir 

Skrifað í Uncategorized | 2 ummæli »

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.