Miss big á niðurleið

ég skal – ég vil – ég get

Archive for maí, 2008

Alvaran tekin við

Höfundur: missbig á maí 20, 2008

Já, ég vaknaði í morgun og fann að ég er komin með nóg af sukkinu, ég herf ekki fylgt neinu palni síðustu vikurnar og er öll svo útþanin eitthvað og líður bara ekki vel. Farin að sakna grænmetinsins og skipulagsins, búin að lifa á brauði, osti og einhverju svona sem tekur engann tíma. Ég fékk bara nóg af því að vera allllltltttaf að elda.

En nú sjáum við til með öll léttingar loforð þar sem næsta mánuðinn er prófatörn hjá mér en ég ætla mér að halda mig frá sykrinum og halda mig við grænmetið. Fer í 3 próf, þann 5, 15 og 26 júní og svo er bara spurning hvað maður fær að gera í sumarfríinu…. ekki enn komin með vinnu… arrrg.

Læt betur vita af mér áður en langt um líður, 

Baráttu kveðja úr Baunalandi

Skrifað í Uncategorized | 1 ummæli »

Á leið til …

Höfundur: missbig á maí 15, 2008

… London! Vííí hvað ég hlakka til. 

Er s.s að fara til London að eyða helginni með eiginmanninum og nokkrum góðum vinum. Kem heim sunnudags kvöld.

góða helgi

Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »

slönguspil

Höfundur: missbig á maí 12, 2008

Hversu oft er hægt að segja á morgun?

Hversu oft er hægt að byrja upp á nýtt?

Hvers vegna gerir maður sér það að detta í það?

Hvenær fær maður nóg og gefst upp?

Verður það einhverntíma að maður nær tökum á þessu, byrjar í síðasta skipti og nær í mark?

Enn og aftur segi ég á morgun.

Tek mig saman í andlitinu og dusta rykið af matardagbókinni.

Nú skal það takast! (sé að það er fullt af heimsóknum hingað inn… ekki vera feimin að kommenta ;) )

Skrifað í Uncategorized | 3 ummæli »

á lífi

Höfundur: missbig á maí 10, 2008

Langar bara að láta vita af mér… ég er á lífi.

Ég er engan vegin að standa mig í matarræðinu, er alveg að fara að taka mig á. Það er bara búið að vera svo mikið að gera hjá mér á öllum sviðum, skólinn tekur núna allann minn tíma enda mánuður í próf. Fer í 3 próf þessa önnina, sem eru dreifð yfir júní mánuð og enda ég svo í prófi á afmælisdaginn minn, 25.júní. Svo er sumarið framundan og ég ekki komin með vinnu…… puhha, það er margt sem er farið að pressa….

En nú er ég að fara að grilla…. læt heyra frá mér fljótlega …lofa því

Baráttukvaðja frá mér.

Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »