Miss big á niðurleið

ég skal – ég vil – ég get

Archive for apríl 26th, 2008

Hlaupabólan!

Höfundur: missbig á apríl 26, 2008

Já ég er komin með hlaupabóluna, samt ekki sko þessa sem ég fékk sem 7 mánaða enda fær maður þá bara einu sinni hihihi.

Ég skrifaði um hlaupa prógammið mitt um daginn, núna er ég sumsé búin með byrjenda prógammið (sem endaði á því að halupa 3×10 mínútur) og nú er ég búin að finna mér framhalds prógramm sem tekur 12 vikur og eftir það á ég að geta hlaupið 10 km eða í ca. klukkutíma…… Hljóp í dag heilar 20 mín án pásu og get sagt ykkur að það er svo góð tilfinning að geta hlaupið smá, hef aldrei getað hlaupið.

Verslaði smá áðan og bara þvílíkt dugleg, bara hollt í körfuna og langaði ekki einu sinni í nammi og kökur hihih, dagurinn er búin að vera voða fínn matarlega og núna er ég að fara að grilla nammmm og svo partí í kvöld þar sem ég er búin að lofa mér að ég meigi drekka smá…. ekki mikið bara smá.

baráttu kveðja

Skrifað í Uncategorized | 1 ummæli »