Miss big á niðurleið

ég skal – ég vil – ég get

Archive for apríl 24th, 2008

Samviskubit…..

Höfundur: missbig á apríl 24, 2008

hæ, ég er hérna ennþá og með þvílíkt samviskubit. 

Eftir páskana tókst mér að komast í gang með ddv og gekk vel í nokkra daga og svo var leiðin bara niður á við og ég er búin að berjast við mig síðan. Skil þetta ekki ég á svo erfitt með að rétta úr kútnum. Er barasta að deyja úr nartsýki og ræð ekki við mig. Næ samt að halda í við mig svona inn á milli, borða morgunmat voða hollt svo byrja ég að skrensa í hádeginu (útaf því að ég vakna svo seint að ég næ ekki að búa til nesti og kaupi mér samloku í skólanum…) þá fæ ég svo mikið samvisku bit að ég ætla að sleppa einhverju ávöxtum í staðin og borða þar af leiðandi ekki neitt þangað til voða seint (hef ekki gert ráðstafanir varðandi kvöldmat) og borða einhverja vitleysu…. sem sagt borða ekkert rétt og allt rangt. (ekki nægilega mikið af hollu og of mikið óhollt)

En núna er ég að reyna að synda í land, Pernille (vigtarinn minn) er svo úber næs að það er ekkert venjulegt, það er svo vont fyrir sálina að standa sig ekki.

Reyndar er ég búin að finna fyrir einhverju þunglyndis veseni, voða þung í skapi og erfitt með að gera allt mögulegt og þar með er matarræðið… ætla að leita mér hjálpar vonbráðar, veit bara ekki við hvern ég á að tala hérna í útlandinu. Hef nefninilega verið að baksa í þessu þunglyndi í allt of mörg ár án þess að leita mér hjálpar og nú nenni ég bara ekki meir, líka svona fyrir fjölskylduna að reyna að ná stjórn á geðsveiflunum…..

Jæja en á morgun er nýr dagur og þar sem ég er búin að viðukenna sukkið og vesenið fyrir ykkur þá get ég vonandi byrjað fersk á morgun og nú eru afsakanirnar búnar á geggjað chilli con carne í frystinum og þá er hádeginu bjargað og svo tek ég út steik fyrir kvöldið  nammmm 

Baráttu kveðja úr baunalandi

Skrifað í Uncategorized | 1 ummæli »