Miss big á niðurleið

ég skal – ég vil – ég get

Archive for apríl, 2008

Hlaupabólan!

Höfundur: missbig á apríl 26, 2008

Já ég er komin með hlaupabóluna, samt ekki sko þessa sem ég fékk sem 7 mánaða enda fær maður þá bara einu sinni hihihi.

Ég skrifaði um hlaupa prógammið mitt um daginn, núna er ég sumsé búin með byrjenda prógammið (sem endaði á því að halupa 3×10 mínútur) og nú er ég búin að finna mér framhalds prógramm sem tekur 12 vikur og eftir það á ég að geta hlaupið 10 km eða í ca. klukkutíma…… Hljóp í dag heilar 20 mín án pásu og get sagt ykkur að það er svo góð tilfinning að geta hlaupið smá, hef aldrei getað hlaupið.

Verslaði smá áðan og bara þvílíkt dugleg, bara hollt í körfuna og langaði ekki einu sinni í nammi og kökur hihih, dagurinn er búin að vera voða fínn matarlega og núna er ég að fara að grilla nammmm og svo partí í kvöld þar sem ég er búin að lofa mér að ég meigi drekka smá…. ekki mikið bara smá.

baráttu kveðja

Skrifað í Uncategorized | 1 ummæli »

Samviskubit…..

Höfundur: missbig á apríl 24, 2008

hæ, ég er hérna ennþá og með þvílíkt samviskubit. 

Eftir páskana tókst mér að komast í gang með ddv og gekk vel í nokkra daga og svo var leiðin bara niður á við og ég er búin að berjast við mig síðan. Skil þetta ekki ég á svo erfitt með að rétta úr kútnum. Er barasta að deyja úr nartsýki og ræð ekki við mig. Næ samt að halda í við mig svona inn á milli, borða morgunmat voða hollt svo byrja ég að skrensa í hádeginu (útaf því að ég vakna svo seint að ég næ ekki að búa til nesti og kaupi mér samloku í skólanum…) þá fæ ég svo mikið samvisku bit að ég ætla að sleppa einhverju ávöxtum í staðin og borða þar af leiðandi ekki neitt þangað til voða seint (hef ekki gert ráðstafanir varðandi kvöldmat) og borða einhverja vitleysu…. sem sagt borða ekkert rétt og allt rangt. (ekki nægilega mikið af hollu og of mikið óhollt)

En núna er ég að reyna að synda í land, Pernille (vigtarinn minn) er svo úber næs að það er ekkert venjulegt, það er svo vont fyrir sálina að standa sig ekki.

Reyndar er ég búin að finna fyrir einhverju þunglyndis veseni, voða þung í skapi og erfitt með að gera allt mögulegt og þar með er matarræðið… ætla að leita mér hjálpar vonbráðar, veit bara ekki við hvern ég á að tala hérna í útlandinu. Hef nefninilega verið að baksa í þessu þunglyndi í allt of mörg ár án þess að leita mér hjálpar og nú nenni ég bara ekki meir, líka svona fyrir fjölskylduna að reyna að ná stjórn á geðsveiflunum…..

Jæja en á morgun er nýr dagur og þar sem ég er búin að viðukenna sukkið og vesenið fyrir ykkur þá get ég vonandi byrjað fersk á morgun og nú eru afsakanirnar búnar á geggjað chilli con carne í frystinum og þá er hádeginu bjargað og svo tek ég út steik fyrir kvöldið  nammmm 

Baráttu kveðja úr baunalandi

Skrifað í Uncategorized | 1 ummæli »

enn og aftur komin helgi

Höfundur: missbig á apríl 4, 2008

Vikan gersamlega flaug frá mér, veit ekki hvað gerðist bara allt í einu komin föstudagur. Ég átti að fara í vigtun í gær…. beilaði. Síðustu dagar hafa ekki alveg verið eftir planinu. Ég er búin að vera svona hálf veik….. þoli ekki svo leiðis væl. 

Hausverkurinn var bara svo svakalegur í gær, langur dagur í skólanum og ég orkaði bara ekki lengra en heim og upp í sófa.

Er ekki í blogg stuði en vildi bara láta vita af því að ég er á lífi!! 

Skrifað í Uncategorized | 3 ummæli »