Miss big á niðurleið

ég skal – ég vil – ég get

Archive for mars 30th, 2008

sunnudagur til sælu

Höfundur: missbig á mars 30, 2008

Þessi vika, þ.e.s. frá miðvikudegi til sunnudags, :D er búin að ganga eins og í sögu. Steig á vigtina í morgun og 74,5 brosti framan í mig. Sem þíðir að sukk kílóin mín eru að hryna af, 3 kg farin á 5 dögum bara 1.1 eftir, eins gott að það (og meira til) verði farið á fimmtudaginn.Mikið er samt pirrandi að eyða 3 vikum í svona rugl, ég gæti verið komin niður í 70 kg ef það hefði ekki verið fyrir svona frí sukk…. en maður má ekki svekkja sig á þessu. Bara standa upp og halda áfram niður á við.Fékk voða hrós frá bóður mínum í gær, var að senda honum myndir úr ferðalaginu. Hann hafði barasta orð á því hvað ég hefði grennst voða mikið.. allaf gaman að fá hrós. ;)  Puhha núna það eina sem kemmst fyrir í hausnum á mér er að mig langar heim til Íslands í heimsókn, hef ekki séð familíuna mína síðan í ágúst, gersamlega vonlaust. Svo endar það sennilega með því að ég verð hérna úti í sumar, að vinna og fer bara örstutt “heim” í frí (þ.e.s. ef maður hefur efni á því..)En súpan eldar sig ekki sjálf, best að malla svolítið.  

Skrifað í Uncategorized | 2 ummæli »