Miss big á niðurleið

ég skal – ég vil – ég get

trallllaaala

Höfundur: missbig á mars 13, 2008

Þá er ég tilbúin í páska fríið, var í vigtun í dag og það yfirgáfu mig víst 1,5 kg þessa vikuna bara nokkuð ánægð með það. Vigtin stendur í 73,4 og með ddv er ég búin að flegja af mér 13,5 kg…. bara 1,5 í 15 kg….úllala

Fer til Swiss á laugardaginn og kem ekki heim aftur fyrr en 25. mars, heilir 10 dagar í örmum eiginmannsins, unaðslegt.

Læt nú samt vita af mér en kallinn er búin að lofa að passa upp á matarræðið með mér. Hann er nú sjaldnast vandamálið…. það er nú hún ég sem fæ allskonar langannir í einhverja vitleisu og set svo bara upp hvolpa svipinn og bræði kallin…. því miður.

En ég ÆTLA að standa mig. Ekkert múður, það var nebblega markmiða setningar dagur á fundinum í dag og mitt markmið er að þann 28 apríl ætla ég að verða orðin 68,4 kg…. arrrrg 5 kg 5 vikur. Koma svo ;)  

3 svör to “trallllaaala”

  1. Dídí sagði

    Til lukku með léttinginn. :) Svaka flott tala! ;) Skemmtu þér vel í útlandinu og njóttu þín til hins ítrasta. :)

  2. 15kg sagði

    Hæ, vildi bara kasta á þig kveðju. Þú ert greinilega á réttri leið. Ég er að reyna að losna við 15 kg.
    Væri gaman að fá lykilorðið á myndasíðuna þína ef þú vilt senda mér.
    fimmtankilo@gmail.com

  3. Snæja sagði

    Til lukku með léttinginn og eigðu góða páska! :)

Skildu eftir svar

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>