Bjartsýniverðlaun Brösters
Höfundur: missbig á mars 4, 2008
Jæja, búin að vera “edrú” í þrjá daga og lífið lítur bara allt öðuruvísi út í dag en það gerði í síðustu viku. Jákvæðnin hefur rutt sér til rúms og ég hef náð 2 1/2 degi (bara útaf því að dagurinn í dag er bara hálfnaður hihih) 100 % ddv, svo er bara að halda áfram að klífa stiga og vona að maður lendi ekki á slöngu reit (slönguspil).
Mig langar bara að þakka þeim sem eru búnir að kommenta hjá mér síðustu daga, þvílíkt búst… þúsund þakkir, vona að ég geti launað það einhvern daginn.
Keypti mér um daginn ferskar gellur ohhh hvað þær eru góðar, þær nefninilega þorna ekki eins og þorskflökin vilja gera, annars elda ég fiskinn svo lítið að hann þornar nú afar sjaldan hjá mér en hvað með það….ohhhh ég elska fisk
Gæti borðað fisk í öll mál ef það væri ekki svona erfitt að nálgast hann hérna (í hinum eina sanna fiski bæ(þorpi) danmerkur) já og ef hann vææri ekki svona rosalega dýr.
Eigið þið einhverja uppáhalds ddv væna uppskrift af fiski, bara svona þannig að maður fái smá tilbreytingu í lífið.
Baráttu kveðja
nyrlifstill sagði
Gaman að heyra að það sé léttara yfir þér núna
Ég þarf að fara að læra að elda fisk, hef aldrei prufað einu sinni.. :S
Gangi þér áfram vel!
Kv. Lífstíll
p.s. ég mæli með að skoða vefinn traineo.com ég setti upp prófíl þar.
Dídí sagði
Fiskiréttur Bumbuskvísu er rosa góður. Hann er á spjallinu og svo á síðunni minni minnir mig.