Miss big á niðurleið

ég skal – ég vil – ég get

Archive for mars, 2008

sunnudagur til sælu

Höfundur: missbig á mars 30, 2008

Þessi vika, þ.e.s. frá miðvikudegi til sunnudags, :D er búin að ganga eins og í sögu. Steig á vigtina í morgun og 74,5 brosti framan í mig. Sem þíðir að sukk kílóin mín eru að hryna af, 3 kg farin á 5 dögum bara 1.1 eftir, eins gott að það (og meira til) verði farið á fimmtudaginn.Mikið er samt pirrandi að eyða 3 vikum í svona rugl, ég gæti verið komin niður í 70 kg ef það hefði ekki verið fyrir svona frí sukk…. en maður má ekki svekkja sig á þessu. Bara standa upp og halda áfram niður á við.Fékk voða hrós frá bóður mínum í gær, var að senda honum myndir úr ferðalaginu. Hann hafði barasta orð á því hvað ég hefði grennst voða mikið.. allaf gaman að fá hrós. ;)  Puhha núna það eina sem kemmst fyrir í hausnum á mér er að mig langar heim til Íslands í heimsókn, hef ekki séð familíuna mína síðan í ágúst, gersamlega vonlaust. Svo endar það sennilega með því að ég verð hérna úti í sumar, að vinna og fer bara örstutt “heim” í frí (þ.e.s. ef maður hefur efni á því..)En súpan eldar sig ekki sjálf, best að malla svolítið.  

Skrifað í Uncategorized | 2 ummæli »

Komin heim

Höfundur: missbig á mars 26, 2008

jæja ég er s.s komin heim úr þvílíkri sukkferð. Þetta byrjaði ágætlega, tók með mér nesti í lestina, keypti ekkert nammi í fríhöfninni, vigtaði flest allt fyrstu tvo dagana svo fór allt í vitleisu. Ekki það að ég hafi endlega borðað allt of mikið en bara voðalega vitlaust lítið grænmeti og lítið vatn…. kom heim eftir 10 daga og prufaði að stíga á viktina…..arrrrg. 77.5kg sem eru 4 kg…. en ég trúi því bara ekki… getur maður þyngst svona mikið á 10 dögum….. en jæja spurning hvað viktin segir þegar ég er búin að drekka fuuuullllt af vatni og halda mig við ddv.

En annars var fríið algerlega frábært þrátt fyrir þetta át… hihi skrifa ferðasögu seinna! 

Skrifað í Uncategorized | 2 ummæli »

trallllaaala

Höfundur: missbig á mars 13, 2008

Þá er ég tilbúin í páska fríið, var í vigtun í dag og það yfirgáfu mig víst 1,5 kg þessa vikuna bara nokkuð ánægð með það. Vigtin stendur í 73,4 og með ddv er ég búin að flegja af mér 13,5 kg…. bara 1,5 í 15 kg….úllala

Fer til Swiss á laugardaginn og kem ekki heim aftur fyrr en 25. mars, heilir 10 dagar í örmum eiginmannsins, unaðslegt.

Læt nú samt vita af mér en kallinn er búin að lofa að passa upp á matarræðið með mér. Hann er nú sjaldnast vandamálið…. það er nú hún ég sem fæ allskonar langannir í einhverja vitleisu og set svo bara upp hvolpa svipinn og bræði kallin…. því miður.

En ég ÆTLA að standa mig. Ekkert múður, það var nebblega markmiða setningar dagur á fundinum í dag og mitt markmið er að þann 28 apríl ætla ég að verða orðin 68,4 kg…. arrrrg 5 kg 5 vikur. Koma svo ;)  

Skrifað í Uncategorized | 3 ummæli »

Draumurinn

Höfundur: missbig á mars 12, 2008

Var á blogg rúntinum og á einu mogga blogginu rakst ég á þessi orð

-Dreymdu stóra drauma…. en láttu þá rætast með því að fara fetið, taka eitt skref í einu.  Hvert skref færir þig nær draumnum.  Ef þú tekur hinsvegar ekkert skref, þá muntu aldrei komast á áfangastað.

-Aldrei að horfa á allan listann í einu, takstu eitt atriði í einu, kláraðnu það og kíktu svo á næsta aðtriði.

-Skref fyrir skref, það er galdurinn.  

Þetta er reyndar ekkert bara enn eitt moggabloggið, heldur er þetta bloggið hennar Áslaugar sem að lýsir ótrúlegri baráttu fjölskyldu með eitt langveikt barn og tvo litla unga í viðbót. 

En engu að síður ættu allir að getað fundið þessum orðum pláss í efri skápnum (höfðinu).

Baráttu kveðja 

Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »

ekki að standa mig ;) í blogginu

Höfundur: missbig á mars 11, 2008

Bara að skella inn örfáum línum. Brjálað að gera í skólanum og tíminn líður svo hratt, allt í einu er maður barasta ekki búin að blogga í viku (já eða meira).Matarræðið gengur, hrasaði aðeins um helgina en annars búin að vera ofur dugleg. Það fóru ekki nema 300 gr í síðustu viku en ég finn að núna verður það aðeins meira …. hihihVigtun á fimmtudaginn og svo fer ég til Sviss á laugardaginn og verð þar í 10 daga….ummmmm páskafrí. Svo er bara að standast freistingarnar. Það er nebblega þannig að þegar ég fer eitthvað finnst ég að ég megi hitt og þetta…algerlega stór misskilingur að kaloríurnar séu eitthvað öðuruvísi í útlandinu.En ég lofa að það kemur blogg fljótlega aftur.Baráttu kveðja ;)  

Skrifað í Uncategorized | 3 ummæli »

Bjartsýniverðlaun Brösters

Höfundur: missbig á mars 4, 2008

Jæja, búin að vera “edrú” í þrjá daga og lífið lítur bara allt öðuruvísi út í dag en það gerði í síðustu viku. Jákvæðnin hefur rutt sér til rúms og ég hef náð 2 1/2 degi (bara útaf því að dagurinn í dag er bara hálfnaður hihih) 100 % ddv, svo er bara að halda áfram að klífa stiga og vona að maður lendi ekki á slöngu reit (slönguspil).

 Mig langar bara að þakka þeim sem eru búnir að kommenta hjá mér síðustu daga, þvílíkt búst… þúsund þakkir, vona að ég geti launað það einhvern daginn.

Keypti mér um daginn ferskar gellur ohhh hvað þær eru góðar, þær nefninilega þorna ekki eins og þorskflökin vilja gera, annars elda ég fiskinn svo lítið að hann þornar nú afar sjaldan hjá mér en hvað með það….ohhhh ég elska fisk :P Gæti borðað fisk í öll mál ef það væri ekki svona erfitt að nálgast hann hérna (í hinum eina sanna fiski bæ(þorpi) danmerkur) já og ef hann vææri ekki svona rosalega dýr. 

Eigið þið einhverja uppáhalds ddv væna uppskrift af fiski, bara svona þannig að maður fái smá tilbreytingu í lífið.  

Baráttu kveðja 

Skrifað í Uncategorized | 2 ummæli »