Langavitleysan
Höfundur: missbig á febrúar 28, 2008
Ok, þessi síðasta vika er búin að vera ömurleg, vægast sagt, þvílíkur rússíbani.
Eina mínútuna er ég svo glöð yfir því að vera á danska, svo aðra mínútuna er ég bara svakalega langt niðri og nenni ekki meiru, tilbúin að gefast upp, sé engann tilgang með þessari eilífu megrun.
Ég meina kommon þegar maður er búin að vera í megrun næstum í 6 ár samfleitt þá sér maður bara ekki lengur tilganginn ef árangurinn er ekki fullkominn.
Sendi Pernille, vigtarráðgjafanum mínum, neyðarkall í tölvupósti um daginn og fékk fínasta pepp til baka. Hún bað mig um að gera eftirfarandi æfingar (4 stk):
1. Skrifaðu 5 ástæður, afhverju þú villt léttast.
2. Brjóttu eitt A4 blað saman, langsum. Öðrumegin skrifar þú kostina við að halda áfram að breita um líffstíl og hinumeginn skrifar þú kostina við að hætta að velta þessu fyrir sér. (þessi fyrri á gjarna að verða mikið lengri)
3. Fylltu bakpoka með bókum, ca 10 kg, og röltu með hann í 10 mín, láttu hann frá þér og finndu svo muninn á því að ganga án hans. (Ef þú getur fundið eitthvað sem vegur jafn mikið og þau kíló sem þú hefur misst prufaðu þá að rölta með það í smá stund).
4. Skrifaðu 5 ástæður þess hversvegna þú varðst ofþung og 5 ástæður fyrir því að þú villt ekki verða það aftur. (5+5 ástæður)
Hún Pernille er svo indæl og skilur svona bakslög og kann að hjálpa manni af stað aftur.
Jæja, vona að þetta hafi hjálpað ykkur álíka mikið og mér. Er vonandi að hökta réttu leiðina. Er s.s á leið í vigtun núna kl 17 og ég bara veit að ég hef þyngst frá því í síðustu viku, það eru alltaf þung skref í vigtun þegar maður veit upp á sig sökina!
En það þíðir ekkert að grenja yfir þessu, ég fæ nýja tölu og vinn bara út frá henni og ekkert með það.
Baráttu kveðja héðan frá Baunalandinu góða
nyrlifstill sagði
Flott hjá þér að mæta samt í vigtun.
Ég beila svo oft þegar ég veit upp á mig sökina..
Gangi þér vel, þú getur þetta!
p.s. Þú mátt endilega senda mér lykilorð á myndasíðuna þína
nyrlifstill sagði
Þú sérð netfangið mitt á “My dashboard” ég sé allavega þitt á mínu.
Snæja sagði
Þetta eru góðir punktar, sérstaklega með bakpokann hehe..
Annars væri ég til í að fá lykilorðið hjá þér
og ég vona að það sé í lagi að ég linki á þig
Er btw líka í DK