Miss big á niðurleið

ég skal – ég vil – ég get

blogga bara á sunnudögum?

Höfundur: missbig á desember 9, 2007

já, enn einn sunnudagurinn, geðveikt að gera í próflestri ég er bara ekki að meika þetta allt. Lesa helling, borða rétt, sofa rétt, hreyfa sig… arrrg.. og já það er rigning hér eins og venjulega. Vigtin hefur samt verið ansi stabíl og eins gott að hún rjúki ekki upp úr öllu valdi í jóla- og prófatíð ég skal standa mig… hihieins og ein sagði á fundi um daginn “ég fitna ekki af matnum sem ég borða milli jóla og nýs árs heldur milli nýjárs og jóla” nokkuð gott ik? Það er samt víst að ég næ ekki markmiðinu mínu fyrir áramótin þ.e. 70 kg. þar sem ég er 74-75 kg núna. Komst ekki í vigtun í síðustu viku (alveg satt, engin léleg afsökun þar á ferð) en ég mæti að sjálfsögðu á morgun. Vona bara að vigtin verði skemmtileg við mig… vona að hún fari ekki yfir 75 kg… var nefninilega 76,0 síðast. nú er bara að halda vel á spöðunum… Það er samt svo gott ef maður nær að borða rétt og hreyfa sig þá nefninilega nær maður að læra mikið meira :D Verð samt að segja ykkur frá því sem mig langar SVO mikið í er búin að dreyma þetta í marga daga, stóra könnu með heitusúkkulaði með rommi (eða appelsínu líkjör) og hellllliiiing af þeyttum rjóma …. slllefffEn ég verð nú að hafa stjórn á mér hihihihihGangi ykkur vel (það er sko allt í lagi að kvitta, það er fullt af heimsóknum og enginn kvittar…. )Baráttu kveðja frá mér ;)  

Ein ummæli to “blogga bara á sunnudögum?”

  1. Ásta sagði

    Vona að þér gangi enn dúndur vel … =)

Skildu eftir svar

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>