vonleysi
Höfundur: missbig á október 21, 2007
Hér á bæ hefur ríkt ákveðið vonleysi út í allt og alla. Mataræðið þar af leiðandi ekki í góðum gír þó að síðasta vika hafi verið með besta móti. Ég er s.s að ná mér upp enn einusinni. Skil ekki afhverju ég dett alltaf í þessar holur, spuring um að láta ath. sjónina.
Reyndar hef ég grun um hvað gæti verið að:
-Ég hef ekki sest niður og sett mér almennileg markmið í langan tíma. Er núna búin að bæta úr því og gerði markmiða lista með hæfilega stórum bitum og verðlaunum. Set það inn á síðuna við tækifæri.
-Viku matseðill hefur heldur ekki verið vikulegur atburður langa lengi. það hjálpar þvílíkt að vita hvað maður er að fara að borða og að eiga allt í ískápnum þegar maður þarf á því aðhalda. Tala ekki um hvað það er mikilvægt að halda matardagdók… hef ekki verið nægilega dugleg í þeirri deildinni. (Reyndar hef ég verið frekar duglega þessa síðustu viku, allt samviskusamlega mælt, vegið og skráð. Vona bara að ég sjái árangur……annars er vonleysið fljótt að ná tökum á mér)
-Byrjaði allt of snögt að hreyfa mig of mikið, fór úr einstaka hjólatúrum og upp í það að hlaupa þrisvar í viku og tvisvar í viku í palla tíma…. bara of mikið stökk enda varð ég bara veik og hef ekkert getað þessa viku.
-Eiginmaðurinn kom í “heimsókn”, var hjá mér í viku, það er bara svo einmannalegt í slatti tíma eftir að hann fer. Þunglyndið grípur mig stundum aðeins of harkalega.
En það þíðir ekkert að væla endalaust á þessu bloggi, ég er alltaf að segja frá því að ég sé að missa tökin. Þetta gengur bara ekki. Héðan í frá ætla ég að vera dugleg að blogga og fara blogghringinn og kvitta…. bara svo að einhverjir nenni nú að kvitta hjá mér.. hihih
Ég bætti á mig rúmlega kílói í síðustu vigtun og er því aftur orðin 79.6 kg. Svo það er ekki eftir neinu að bíða, upp á hestinn og reyna að halda sér á baki.
Er farin í að endurskoða markmiðin hér á síðunni… kannski eru þau of stór…. vona að þetta gangi eftir.
Mér þætti ósköp vænt um að þið sem kíkið hér við skiljið eftir ykkur spor… ég svara í sömu mynnt
Baráttu kveðjur úr Baunalandi
Fröken UB sagði
Kannast við það að vera alltaf að rífa sig upp aftur og aftur. En á meðan maður rífur sig upp, þá er alltaf von
Berjast!
Ásta sagði
Maður verður að læra af mistökunum =) Gangi þér vel
LífstílL_ sagði
Þú getur þetta!!
Ég kannast við það hvað matardagbók er mikilvæg, samt er alveg furðulegt hvernig maður getur sannfært sig um að skrifa ekki í hana.. :S
Veit ekki hvort að þú manst ennþá eftir mér.. hehe.. en ég ætla allavega að reyna að byrja að blogga aftur.
Hugsaðu bara um hvað það sé gaman að líta alltaf betur og betur út þegar eiginmaðurinn kemur í heimsókn
Baráttukveðjur,
Lífstíll
liljuros sagði
Kona sem bloggar á fossvogskonan.blogspot.com hefur stolið færslu þinni og póstað sem sinni eigin. Hefur gert þetta oft við mig og hef fengið mig fullsadda. Byrjaði að googla random línur úr bloggum hjá henni sem eru allar stolnar héðan og þaðan af íslenskum bloggum. Ákvað að láta fólk vita.
Liljurós.
Fossvogskonan sagði
Liljurós, ósköp tekurðu stórt upp í þig, þegar þú segir að ág hafi marg oft stolið af bloggi frá þér, ég hef einu sinni tekið nokkrar setningar, svo ég segi bara “don´t flather yourself”.
Annars skrifarðu alveg ágætt blogg, þótt ég hafi aldrei skoðað það fyrr en ég nappaði þessum fáu setningum frá þér, það er alltaf fínt að safna í sarpinn því sem mann langar að skoða seinna og hefur áhuga á, og mun ég ekkert hætta því, þó svo að ég hafi neyðst til að læsa fyrir komments, þar sem sum voru vægast sagt ógeðfelld, og vil ég ekki að börnin mín þurfi að lesa þann munnsöfnuð, sem þar var kominn.
Kveð í bili og vona að þú hættir ekkert að blogga,
Fossvogskonan
PS. Þetta sama gildir fyrir missbig, hef aldrei lesið bloggið hennar fyrr en ég rakst á það í dag eða gær, og vona ég að hún haldi áfram að blogga, enda alveg stórskemmtilegt blogg, það er að segja, ef fólk er í einhvers konar matar aðhaldi.